Metþátttaka er í skákþingi Garðabæjar 2013, því alls taka 48 manns þátt í 2 flokkum.
í A flokki tefla 29 skákmenn og er stigahæstur fyrrverandi skákmeistari Garðabæjar Jón Árni Halldórsson sem hefur síðustu ár teflt fyrir Fjölni en Jón Árni er gríðarlega öruggur skákmaður sem hefur þó heldur skerpt á skákstílnum undanfarin ár með mjög góðum árangri. Einnig má nefna Akureyringinn reynslumikla Gylfa Þórhallson sem teflir að vanda hvasst og getur unnið hvern sem er, sem og margfaldan skákmeistara Garðabæjar Jóhann Ragnarsson en þeir Gylfi og Jóhann ásamt reyndar Sævari Bjarnasyni eru þeir sem langfle
star kappskákir hafa teflt af íslendingum eða langt yfir 1000 hvor. Jóhann er helsta vonarstjarna okkar manna til að vinna mótið.
Fleiri heimamenn tefla þó í A flokknum. Kópavogsbúinn Páll Andrason er nýgenginn í félagið en hann á marga meistaratitlana að baki í barna og unglingaflokki sérstaklega í liðakeppni í skólaskák en þar hafa komið Íslands, Norðurlanda- og Heimsmeistaratitill þannig að Palli er öflugur liðsstyrkur þótt hann hafi ekki mikið teflt síðasta árið. Það sýndi sig reyndar í fyrstu skákinni þar sem hann tapaði fyrir Sóknarprestinum úr Hvalfirði Kristni Sigurþórssyni sem reyndar mun hafa búið í Garðabæ á yngri árum að Palli var ekki alveg í sem bestri æfingu. En heimamenn eru fleiri. Td. Bjarnsteinn Þórsson sem tefldi einvígi um titilinn í fyrra, Ólafur Guðmundsson sem tefldi einna best fyrir B liðið hjá TG í Íslandsmóti Skákfélaga, og að lokum Haraldur Arnar Haraldsson en þeir Óli komu saman í félagið fyrir nokkrum árum. Hann er hér að tefla á fyrsta alvöru kappskákmóti sínu fyrir utan nokkrar skákir í Íslandsmótinu. En þótt hann sé ekki með skákstig þá er er hann enginn byrjandi þótt hann sé óvanur mótaþátttöku, eins og sýndi sig í skák hans við Gauta Páll sem endaði í jafntefli eftir skrautlega forsögu, þar sem Gauti tefldi full agressívt og fékk verra tafl. En meðan Gauti átti leik þá tók Halli allt í einu eftir að hann átti hrók í dauðanum og byrjaði að fussa og sveija og tók í kallana hjá sér. Honum var bent svo á af áhorfanda að síðasti leikur hans hafði skákað kóng andstæðingsins og því því þurfti Gauti fyrst að bregðast við því. Skákin endaði svo nokkrum leikjum síðar með þrátefli en Haraldur var með mun betra á þeim tímapunkti, 3 peðum yfir en lá undir smá pressu. Skondið atvik en þar sem klukkan stoppaði ekki og Gauti krafðist ekki refsingar þá verður þetta ekki talin uppgjöf. þannig að segja má að hann hafi sloppið með skrekkinn, þótt vissulega hefði þetta verið óheppilegt atvik.
En úrslitin urðu annars eftir bókinni fyrir utan þessar tvær skákir en Ólafur Hermannsson mátti þó teljast stálheppinn að vinna sína skák þar sem hann hafði skítastöðu eiginlega alla skákina.
B flokkurinn er að mestu skipaður ungum og efnilegum skákmönnum bæði þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref og eins þeim sem eru orðnir ansi hreint vanir. Stigahæsti skákmaðurinn í B flokki er Mikael Kravchuk sem er ungur TR ingur. Brynjar Bjarkason Haukum er annar efnilegur skákmaður sem vann sigur á Unglingalandsmóti UMFÍ í sumar og leiddi lið Hraunvallaskóla í 3. sæti á síðasta Íslandsmóti Barnaskólasveita. Einnig má nefna Þorstein Magnússon TR og hinn síunga Björgvin Kristbergsson sem hefur ekki slegið slöku við taflmennskuna síðustu ár og margur ungur skákmaðurinn sem hefur fengið sín fyrstu skákstig af hans völdum. Einnig er ungur skákmaður í flokknum sem er að stíga sín fyrstu skref í kappskákmótum en hér er um að ræða Stefán Orri Davíðsson sem er yngri bróðir Óskars Víkings Davíðssonar sem vann flokkinn í fyrra.
Af heimamönnum eru helstu vonarstjörnurnar þeir Kári Georgsson og Bjarki Arnaldarson sem hafa teflt saman undanfarin ár með liði Hofstaðaskóla, en Kári er kominn í Garðaskóla og tefldi mjög vel á síðasta íslandsmóti skákfélaga fyrir lið TG þannig að hann er til alls líklegur. Bjarki er einnig góður og af mikilli skákfjölskyldu kominn en er stundum full ör og mætti flýta sér hægar. Aðrir fulltrúar TG í B flokki eru Matthías Hildir Pálmason, Karl Oddur Andrason, Axel Örn Heimisson, Sigurður Gunnar Jónson og Tómas Andri Ólafsson, en þeir eru að tefla sínu fyrstu kappskákir utan þess að Matti var búinn að tefla amk. 1. áður í Íslandsmóti skákfélaga.
sjá má pörun, stöðu og keppendalista með því að smella hér.
Skákir fyrstu umferðar má finna líka hér.
http://www.tgchessclub.com/skakir/2013/SKGB2013Ar1.PGN fyrir A flokk og http://www.tgchessclub.com/skakir/2013/SKGB2013Br1.PGN fyrir B flokk.
Umfjöllun um mótið er einnig á facebook síðu félagsins. https://www.facebook.com/tgchess