Þriðja umferð skákþings Garðabæjar var haldin síðastliðið mánudagskvöld. 

Ólafur Guðmundsson lyfti sér á toppinn með sigri á Jón Þór Helgasyni á meðan Jóhann Helgi og Bárður gerðu jafntefli og eru því með 2,5 vinning ásamt Unnari Ingvarssyni í 2-4 sæti. 

Annars voru úrslitin nokkuð fyrirsjáanleg nema Bjarnsteinn tapaði sínu öðru jafnteflislegu endatafli í mótinu fyrir Ingvari Egil. 

Einni skák var frestað vegna veikinda. Hún verður hugsanlega tefld í kvöld, en annars síðar.

Skákir 3. umferðar í A flokki.

 

Róbert Luu vann uppgjör efstu manna gegn Aron Mai en Bragi Þór mætti ekki gegn syni sínum og missti þar af toppsætinu.

Þorsteinn Magnússon vann Halldór Atla Kristjánsson og Sindri Snær vann Björgvin. 

Parað verður í næstu umferð á fimmtudag. 

Skákir 3. umferðar í B flokki