Nú liggur fyrir pörun á mánudag sjá Chess Results. (báðir flokkar)
Þar má helst nefna að Guðlaug fær Jóhann Helga, Agnar Möller fær Jón Þór, Jón Eggert fær Bárð og Páll fær Ólaf Guðmunds.
3 skákir verða frestaðar og verða tefldar á miðvikudegi kl. 19:30 í TR samhliða vetrarmóti Öðlinga, en það eru skákir
Guðlaugu og Jóhanns Helga,
Jóns Eggerts og Bárðar og
Unnars og Björns Hólm.
Plantada fær hins vegar skottu og situr því hjá.
Í b flokki verður ein skák tefld fyrirfram, þe. Arnór og Axel Örn og verður hún tefld á morgun kl. 12.
Verðlaunafé liggur fyrir og verður skipt eftir Hort kerfi í báðum flokkum. (uþb. 70% af þátttökugjöldum)
A flokkur.
1. vl. 25.000,-
2. vl. 15.000,-
3. vl. 10.000,-
B flokkur.
1. vl. 13.000,-
2. vl. 8.000,-
3. vl. 5.000,-
einnig verða veittir gripir fyrir efsta sæti í báðum flokkum. Auk þess sem skákmeistari Garðabæjar hlýtur eignargrip.