Taflfélag Garðabæjar hélt Íslandsmót Unglingasveita í Garðalundi í Garðabæ síðasta laugardag. Alls tóku 16 lið þátt frá 5 taflfélögum þátt. Eingöngu lið frá höfuðborgarsvæðinu voru með að þessu sinni en vitað var td. að Akureyringar eiga mjög sterkt lið sem gæti átt mörguleika á verðlaunasætum. Hvorki KR ingar né Víkingaklúbburinn náðu að manna lið.

 

Taflfélag Reykjavíkur eiginlega kom, sá og sigraði í mótinu þar sem þeir komu með alls 6 lið þar sem 5 af þessum 6 liðum lentu efst í sínum flokki, auk þess að verða íslandsmeistarar 2013. sem er fyrsti titill TR eftir nokkurt hlé því þeir áttu góðu gengi að fagna á fyrstu árum keppninnar.

Fjölnismenn voru reyndar í báráttunni alveg fram að síðustu umferðum mótsins þegar lið GM Hellis skaust hálfan vinning upp fyrir. 

 

Lið Íslandsmeistara TR A var skipað þeim Vignir Vatnar Stefánssyni 6 af 7, Gauta Páli Jónssyni 6,5 af 7, Veroniku Magnúsdóttur 5 af 7 og Birni Hólm Birkissyni 6 af 7 

eða alls 23,5 vinningur. sem er glæsilegur árangur. 

Lið GM Helllis A sem endaði í 2. sæti var skipað Hilmi Frey Heimissyni, Dawid Kolka, Felix Steinþórssyni og Heimi Páli Ragnarssyni. 

 

 

 

 


Lið Fjölnis A sem voru meistarar í fyrra með fullu húsi var skipað þeim Óliver Aron Jóhannessyni sem var besti maður mótsins og vann allar skákirnar á fyrsta borði. Nansý Davíðsdóttir, Jóhanni Arnari Finnssyni og Hilmi Hrafnssyni.  Lið Fjölnis missti 2 gríðarsterka skákmenn vegna aldurs upp úr liðinu og náðu þeir ekki að fylgja frábærum árangri síðan í fyrra eftir.

B lið TR var svo mjög gott líka en þar á eftir komu lið GM Hellis B, TG A og Hauka og Fjölnis B öll með svipaðan árangur. GM Hellir B varð sjónarmun á undan TG á 2 stigaútreikningi 

 

Lokastaða

Rank Team Gam. + = - Pts. MP
1 TR A 7 6 1 0 23½ 13
2 GM Hellir A 7 4 1 2 21 9
3 Fjölnir A 7 5 2 0 20½ 12
4 TR B 7 4 2 1 19½ 10
5 GM Hellir B 7 3 1 3 15½ 7
6 Taflfélag Garðabæjar A 7 3 1 3 15½ 7
7 Haukar 7 4 0 3 15 8
8 Fjölnir B 7 3 1 3 15 7
9 GM Hellir C 7 3 1 3 13 7
10 TR D 7 3 0 4 12½ 6
11 TR C 7 3 0 4 11½ 6
12 Fjölnir C 7 3 0 4 11½ 6
13 GM Hellir D 7 3 0 4 11 6
14 TR E 7 2 1 4 9½ 5
15 Taflfélag Garðabæjar B 7 1 1 5 6½ 3
16 TR F 7 0 0 7 3 0

 

 

TR A varð því Íslandsmeistari.

TR B vann keppni B liða.

GM Hellir C vann keppni C liða.

TR D vann keppni D liða

TR E vann keppni E liða 

og TR F sem jafnframt var eina hreina stúlknasveitin skipuð 6 og 7 ára stúlkum var besta F sveitin. 

 

Borðaverðlaun fengu eftirfarandi. (ath. vinningar á borðaspjöldum töldu)

1. borð. Oliver Aron Jóhannesson Fjölni.

2. borð. Gauti Páll Jónsson TR A og Dawid Kolka GM Helli A.

3. borð. Mykhaylo Kravchuk TR B 7 af 7. (reyndar tapaði hann einni skák en það var á 2. borði og varamaður hans sá um að innbyrða vinning á 3. borðinu á meðan)

4. borð. Björn Hólm Birkisson TR A og Ívar Birgisson GM Hellir B

Árangur okkar heimamanna var eins og við var að búast. Við vorum með Sóley Lind Pálsdóttur á fyrsta borði sem er orðin þó nokkuð reynd og hefur teflt á Norðurlandamótum fyrir Íslands hönd. hún fékk 5 vinninga af 7 á fyrsta borði og var raunar með unnið á Oliver Aron en missti stöðuna niður. Hinn ungi Bjarki Arnaldarson skilaði 50% 3,5 af 7 á öðru borði og Kári Georgsson fékk 4 vinninga og vann meðal annarra Jóhann Arnar Finnsson sem er í A sveit Fjölnis. Kára gengur oft betur á móti sterkari mönnum einhverra hluta vegna. á 4. borði var svo nýliðinn 

Matthías Hildir Pálmason en þeir Bjarki eiga það sameiginlegt að eiga sterka skákmenn sem feður. Sem reyndar hvorugur teflir með félaginu. Matti fékk 3 vinninga af 7. sem er vel viðunandi. A liðið endaði í 5-6 sæti og telst því unglingaliðið 4 sterkasta félag landsins.

Félagið sendi enn óreyndari B sveit til leiks og lenti hún í 15 sæti. Fyrirfram var ekki búist við miklum árangri en liðið náði að vinna eina viðureign og gera eitt jafntefli og endaði með 6,5 vinning. og Þar að auki fengu allir í liðinu 1-2 punkta hver. Fyrir liðið tefldu á fyrsta borði Sigurður Gunnar Jónsson, Sólón Siguringason, Haukur Georgsson og Axel Örn Heimisson. 

Stöðu pörun og öll úrslit má finna á chess-results.com - http://chess-results.com/tnr116230.aspx?lan=1&art=0&wi=821

Einnig má finna fjölmargar myndir af mótinu á skak.is - http://skak.blog.is/album/slandsmot_unglingasveita_2013/