Uppfært.

Skák Ólafs og Bjarnsteins lauk með jafntefli í líklega unninni stöðu á Ólaf. það var þó langt frá því að vera augljóst og með 30 sek á klukku mjög erfitt.

Pörun í 6 umferð liggur fyrir og liggur það fyrir að toppslagurinn verður á milli Jóns Árna og Siguringa sem báðir hafa 4 vinninga. Hjálmar fær skottu.

Frestað og flýtt.

5 umf. 

Skák Lofts og Jóhanns - óvíst.

Skák Gauta og Felix fer fram í kvöld kl. 7 í Garðaskóla. 

Það verða 2 skákir frestað eða flýtt í 6. umferð.

Bárður Örn - Gauti Páll - Miðvikudagur. meðfram Skákmóti Öðlinga í TR.

Guðmundur Kristinn Lee - Ólafur Hermannsson - miðvikudagur meðfram skákmóti Öðlinga í TR - en byrjar hugsanlega fyrr.

 

A flokkur 

5. umferðin var tefld síðasta fimmtudag. Alls var 3 skákum frestað og er ein í gangi þegar þetta er skrifað og því parað í næstu umferð þegar henni líkur því aðrar skákir verða tefldar í fyrsta lagi á miðvikudag.

Forustusauðurinn Jón Árni Halldórsson tefldi slavneska vörn gegn Gylfa Þórhalls sem byrjaði rólega en Gylfi sem er ekki þekktur fyrir rólegar skákir fórnaði peði og fór í sókn. fékk peðið sitt til baka og 2 að auki. og var með betra tafl þar til hann lék f4 og opnaði kóngstöðuna. þar með komst Jón Árni í geng og Gylfi sá ekkert betra en að þráskáka sem var líklega rétt hjá honum.

Siguringi Sigurjónsson komst á toppinn með sigri á spútninkskákmanninum Kristni Jóni Sævaldssyni sem var efstur ásamt Jóni Árna fyrir umferðina. Kiddi tefldi þessa skák ekki vel og Siguringi komst kalli yfir og með alskyns slæmar hótanir en hleypti Kidda aftur inn í skákina, sem blönderaði svo aftur þegar hann missti heilan hrók. Skák Lofts og Jóa var frestað, en sigri annar hvor kemst viðkomandi á toppinn. Páll Andra tefldi nokkuð vel á móti Birki Karli og komst í endatafl með sterkan riddara og peði yfir en tefldi framhaldið ekki alveg nógu nákvæmt og skákin endaði í jafntefli. Auðbergur vann Bárð í skemmtilegri skák þar sem Aui hirti miðborðið og fékk stöðuna með. 

Af óvæntum úrslitum má nefna að Björn Hólm vann Gumma Lee í skemmtilegri skák. Björn fékk kollunna stöðu en lék af sér og gaf Gumma færi á að komast skiptamun yfir og jafna stöðuna en í staðinn fyrir að bakka niður úr skák þá fór hann út á borðið og varð mát í einum. Jón Eggert Hallsson sem er stigalaus vann svo Ragnar Árnason en þar sem það að vera stigalaus og hafa ekki teflt í mótum áður segir afskaplega lítið um styrkleika viðkomandi. Einfaldlega segir það að viðkomandi skákmaður hafði ekki fengið hina opinberu mælingu sem felst í skákstigum.

 

B flokkur. 

Uppgjör efstu manna var hálf einkennileg skák. Hún endaði í jafntefli en Brynjar Bjarkason var kominn manni yfir eftir byrjunina en okkar maður Bjarki Arnaldar var aftur á móti kominn 3 peðum yfir í yfirburða-endatafli sem hann glutraði niður. Það voru því miklar sveiflur í skákinni. Bjarki heldur því enn efsta sætinu með 4 vinninga af 5.  

Svanberg Helgi telfdi einnig skrautlega gegn Þorsteini Magnússyni og hafði hann amk 2. svar unnið gegn Þorsteini en hann átti síðasta afleikinn og Þorsteinn náði yfirburðastöðu þar sem hann var í engum vandræðum með að innbyrða sigurinn og skjótast þar með upp að hlið Brynjars með 4. vinninga. Upp að hlið þeirra náði einnig Kári Georgsson sem vann Burkna Björnsson í þokkalega tefldri skák. Byrjaði reyndar að fá 2 peð sem hann tapaði aftur en tefldi endataflið betur og innbyrti vinninginn örugglega. Það eru því 3 skákmenn sem eru efstir með 4 vinninga. Brynjar Bjarkason Haukum, Þorsteinn Magnússon TR og heimamaðurinn Kári Georgsson TG.

Mikael Kravchuk vann örugglega geng Þorsteini Jónssyni en önnur úrslit voru eftir bókinni nema helst hjá Sigurði Gunnar gegn Matthíasi. 

Hinn ungi Adam Omarsson tapaði nokkuð verðskuldað fyrir Karli Oddi en þeir lærðu vonandi báðir að hugsa áður en þeir snerta menn, því Karl Oddur tók upp Drottningu sína og ætlaði fyrst að drepa peð á e4 og snerti peðið, en tók um leið eftir því að það var valdað. Þannig að hann leitaði að betri leik og fann hann eftir töluverða umhugsun í Dxf1 mát. Adam hefði að sjálfsögðu getað krafist þess að hið snerta peð hefði verið drepið en vegna ungs aldurs þekkti hann ekki regluna um snertan mann. Andstæðingur hans var reyndar einnig að tefla á sínu fyrsta alvöru móti. Skákstjóri má hins vegar ekki leiðbeina keppendum um skákreglur þegar þeir tefla fyrr en eftir skák, nema um sé beðið af viðkomandi keppanda. 

 

úrslit staða og pörun í 6. umferð í báðum flokkum: http://chess-results.com/tnr114398.aspx?lan=1&art=2&rd=5&flag=30&wi=821

Myndir frá mótinu.

Skákir:

A flokkur B flokkur
1. umferð  1. umferð
2. umferð 2. umferð
3. umferð 3. umferð
4. umferð 4. umferð
5. umferð 5. umferð
6. umferð 6. umferð
7. umferð 7. umferð