- Details
- Written by: Administrator
- Category: Skákmót
- Hits: 1965
Mótsstaður: Garðatorg 1. (gamla Betrunarhúsið). 2. hæð. Inngangur til hægri við verslunina Víði.
Umferðatafla:
1. umf. Föstudag 13. okt. kl :19:30
2. umf. Mánudag 16. okt. kl. 19:30
3. umf. Mánudag 30. okt kl. 19:30
4. umf. Föstudag 3. nóv. kl. 19:30
5. umf. Mánudag 6. nóv. kl: 19:30
6. umf. Föstudag 10. nóv kl. 19:30
7. umf. Mánudag 13. nóv. kl. 19:30
Verðlaunaafhending og Hraðskákmót Garðabæjar mánudaginn 27. Nóvember kl 20:00
Keppnisfyrirkomulag er svissneskt kerfi. Skákstjóri er Páll Sigurðsson. Sími 860 3120
Tímamörk eru 90 mínútur og 30 sek sem bætist við hvern leik.
Mótið er opið öllum.
Leyfilegt er í mótinu í umferðum 1-5 að taka einu sinni hjásetu gegn hálfum vinning. Ekki er hægt að taka hjásetu eftir að pörun í umferð liggur fyrir. 0 vinningar reiknast í tiebreak fyrir slíka hjásetu.
Verðlaun auk verðlaunagripa:
Heildarverðlaun fyrir efstu 3 sæti uþb. 60% af aðgangseyri í hvorum flokki skipt eftir Hort Kerfinu.
Verðlaun skiptast (50/30/20). Lágmarks-heildarverðlaun eru 20.000 fyrir þessi sæti.
Mótið er um leið skákþing Taflfélags Garðabæjar. (keppt er um titilinn ef jafnt).
Aukaverðlaun verða fyrir þann skákmann sem nær flestum samanlögðum vinningum úr bæði Skákþingi Garðabæjar og U2000 móti Taflfélags Reykjavíkur. (samanlögð Buchholz stig ráða ef jafnt á vinningum) Kr. 10.000.-
Efsti skákmaður í ca. hverjum 10 manna stigaflokki mv. fide stig (ísl til vara) fær 5000 króna aukaverðlaun. Stigalausir telja ekki. þe. ef 30 keppendur verða tvenn slík verðlaun.
Sæmdartitilinn Skákmeistari Garðabæjar geta aðeins fengið félagsmenn taflfélags í Garðabæ eða skákmaður með lögheimili í Garðabæ.
Þátttökugjöld:
Félagsmenn. Fullorðnir 3000 kr. 17 ára og yngri ókeypis.
Utanfélagsmenn. Fullorðnir 4000 kr. Unglingar 17 ára og yngri 2000 kr
Skráning í mótið fer fram á skak.is
Skákmeistari Garðabæjar 2016 var Páll Sigurðsson.
Hér er hægt að skoða hverjir eru skráðir
https://docs.google.com/spreadsheets/d/1sCf0mBXdAk3y4IUj4Z_AFnDficJtrzH97JQk5feiyhM/edit?usp=sharing
- Details
- Written by: Administrator
- Category: Skákmót
- Hits: 1675
Skákþing Garðabæjar hefst mánudaginn 29. október 2018.
Tefldar verða 7 umferðir og verður mótið reiknað til íslenskra og alþjóðlegra stiga.
Mótsstaður: Garðatorg 1 (gamla Betrunarhúsið). 2. hæð.
Umferðatafla:
1. - 4. umf. Mánudag 29. okt. kl. 19:30
5. umf. Mánudag 5. nóv. kl. 19:30
6. umf. Mánudag 19. nóv kl. 19:30
7. umf. Mánudag 26. nóv. kl. 19:30
Verðlaunaafhending og Hraðskákmót Garðabæjar fer fram mánudaginn 3. desember kl 20:00
Keppnisfyrirkomulag er svissneskt kerfi. Skákstjóri er Ingibjörg Edda Birgisdóttir.
Fyrirkomulag mótsins verður frábrugðið því sem verið hefur undarnfarin ár, þannig að fyrstu fjórar umferðir verða atskákir tefldar á sama kvöldinu.
Tímamörk fyrir atskákirnar eru 15 mínútur og 10 sek sem bætast við hvern leik Tímamörk fyrir kappskákirnar eru 90 mínútur og 30 sek sem bætast við hvern leik.
Mótið er opið öllum og ekki er boðið upp á hjásetu.
Verðlaun auk verðlaunagripa:
Heildarverðlaun fyrir efstu 3 sæti uþb. 60% af keppnisgjöldum, skipt eftir Hort Kerfinu.
Verðlaun skiptast (50/30/20). Lágmarks-heildarverðlaun eru 20.000 fyrir þessi sæti.
Mótið er um leið skákþing Taflfélags Garðabæjar. (keppt er um titilinn ef jafnt).
Aukaverðlaun verða fyrir þann skákmann sem nær flestum samanlögðum vinningum úr bæði Skákþingi Garðabæjar og U2000 móti Taflfélags Reykjavíkur. (samanlögð Buchholz stig ráða ef jafnt á vinningum) Kr. 10.000.-
Sæmdartitilinn Skákmeistari Garðabæjar geta aðeins fengið félagsmenn taflfélags í Garðabæ eða skákmaður með lögheimili í Garðabæ.
Þátttökugjöld:
Félagsmenn sem greitt hafa félagsköld. Fullorðnir 3000 kr. 17 ára og yngri ókeypis.
Aðrir. Fullorðnir 4000 kr. Unglingar 17 ára og yngri 2000 kr
Skákmeistari Garðabæjar 2017 er Páll Snædal Andrason.
Skráning í mótið fer fram á www.skak.is
Hér er hægt að sjá þá sem þegar eru skráðir: Skráningar
- Details
- Written by: Administrator
- Category: Skákmót
- Hits: 1003
Skákþing Garðabæjar 2019 hefst föstudaginn 18. október.
Tefldar verða 7 umferðir og verður mótið reiknað til íslenskra og alþjóðlegra stiga.
Mótsstaður: Garðatorg 1 (gamla Betrunarhúsið). 2. hæð.
Umferðatafla:
1. - 3. umf. Föstudag 18. okt. kl. 19:30
4. umf. Mánudag 21. okt. kl. 19:30
5. umf. Föstudag 25. okt. kl. 19:30
6. umf. Mánudag 28. okt kl. 19:30
7. umf. Föstudag 1. nóv. kl. 19:30
Verðlaunaafhending og Hraðskákmót Garðabæjar fer fram mánudaginn 4. nóvember kl 20:00
Keppnisfyrirkomulag er svissneskt kerfi. Skákstjóri er Sóley Lind Pálsdóttir.
Fyrirkomulagi er aðeins breytt frá síðasta ári er að nú verða tefldar 3 atskákir og 4 kappskákir. Einnig verður teflt tvisvar í viku í stað einusinni, það er á föstudögum og mánudögum
Tímamörk fyrir atskákirnar eru nú 25 mínútur með 5 sek sem bætast við hvern leik. Tímamörk fyrir kappskákirnar eru 90 mínútur og 30 sek sem bætast við hvern leik.
Mótið er opið öllum og er ein hjáseta leyfð til og með 5 umf. Tilkynna þarf hjásetu fyrir lok 3. umferðar.
Verðlaun auk verðlaunagripa:
Heildarverðlaun fyrir efstu 3 sæti uþb. 60% af keppnisgjöldum, skipt eftir Hort Kerfinu.
Verðlaun skiptast (50/30/20). Lágmarks-heildarverðlaun eru 20.000 fyrir þessi sæti.
Mótið er um leið skákþing Taflfélags Garðabæjar. (keppt er um titilinn ef jafnt).
Sæmdartitilinn Skákmeistari Garðabæjar geta aðeins fengið félagsmenn taflfélags í Garðabæ eða skákmaður með lögheimili í Garðabæ.
Þátttökugjöld:
Félagsmenn sem greitt hafa félagsköld. Fullorðnir 3500 kr. 17 ára og yngri ókeypis.
Aðrir. Fullorðnir 5000 kr. Unglingar 17 ára og yngri 2500 kr
IM/WIM og GM/WGM greiða ekki þáttökugjöld.
Hægt verður að sækja um eina yfirsetu (0,5 vinningur) en umsóknin skal berast skákdómara fyrir lok 3. umferðar.
Skákmeistari Garðabæjar 2018 er Sigurður Daði Sigfússon og Skákmeistari Taflfélags Garðabæjar er Jóhann H. Ragnarsson.
Skráning í mótið fer fram á www.skak.is eða hér: Skráningarform
Hér er hægt að sjá þá sem þegar eru skráðir: Skráningar
- Details
- Written by: Administrator
- Category: Skákmót
- Hits: 1373
Skákþing Garðabæjar 2022 hefst mánudaginn 29. Ágúst.
Tefldar verða 7 umferðir og verður mótið reiknað til íslenskra og alþjóðlegra stiga.
Mótsstaður: Safnaðarheimili Vídalínskirkju. Garðabæ. Kirkjulundi 3. Inngangur á bak við.
Umferðatafla:
- -3 umf. Mánudaginn 29. ágúst kl. 19:00 – atskákir.
- umf. Mánudaginn 5. sept. kl. 19:00
- umf. Mánudaginn 12. sept. kl. 19:00
- umf. Mánudaginn 19. sept. kl. 19:00
- umf. Mánudaginn 26. sept. kl. 19:00
Verðlaunaafhending og Hraðskákmót Garðabæjar fer fram mánudaginn 31. Október. kl 19:00
Keppnisfyrirkomulag er svissneskt kerfi. Aðalskákstjóri er Páll Sigurðsson
Tímamörk fyrir atskákirnar eru nú 25 mínútur með 5 sek sem bætast við hvern leik. Tímamörk fyrir kappskákirnar eru 90 mínútur og 30 sek sem bætast við hvern leik.
Mótið er opið öllum og er ein hjáseta leyfð til og með 5 umf. Tilkynna þarf hjásetu fyrir lok umferðarinnar á eftir. Frestun skáka er illmöguleg.
Verðlaun auk verðlaunagripa:
Heildarverðlaun fyrir efstu 3 sæti uþb. 70% af keppnisgjöldum, skipt eftir Hort Kerfinu.
Verðlaun skiptast (50/30/20). Lágmarksverðlaun í fyrsta sæti er 15.000. kr.
Mótið er um leið Skákþing Taflfélags Garðabæjar. (keppt er um titilinn ef jafnt).
Sæmdartitilinn Skákmeistari Garðabæjar geta aðeins fengið félagsmenn taflfélags í Garðabæ eða skákmaður með lögheimili í Garðabæ.
Þátttökugjöld:
Félagsmenn Fullorðnir 3000 kr. 17 ára og yngri ókeypis.
Aðrir. Fullorðnir 5000 kr. Unglingar 17 ára og yngri 3000 kr
IM/WIM og GM/WGM greiða ekki þáttökugjöld.
Skákmeistari Garðabæjar 2021 er Ögmundur Kristinsson og Skákmeistari Taflfélags Garðabæjar er Jóhann Ragnarsson. Sigurvegari á Skákþingi Garðabæjar 2021 var Davíð Kjartansson.
Skráning í mótið er á þessum hlekk
- Details
- Written by: Administrator
- Category: Skákmót
- Hits: 1832
Alls taka amk. 22 skákmenn þátt í A flokki skákþingsins sem er fín þátttaka.
Í fyrstu umferð gekk flest á afturfótunum fyrir heimamenn eiginlega en þó vann Jóhann Helgi góðan sigur. Hins vegar lágu bæði Guðlaug og Páll fyrir bræðrunum úr Kópavogi sem eru á mikilli uppleið um þessar mundir og má segja að mikil þrautsegja einkenni þá því Bárður var kominn í tímahrak gegn Páli, sem lék af sér þrátt fyrir að andstæðingurinn væri í hrakinu. Sama byrjun kom upp í báðum skákunum-ítalskur leikur.
Fleiri óvænt úrslit litu samt dagsins ljós Sindri Guðjóns tapaði fyrir Jóni Eggert Hallsyni, Estaislau vann Friðgeir Hólm og auk þess náði náðu þeir Ingvar Egill og Sveinn Gauti jafntefli gegn sterkari andstæðingum. Sveinn Gauti gegn núverandi meistara Garðabæjar. Þá náði Alec Sigurðarson jafntefli gegn Jón Þór Helgasyni og stóð raunar lengst af betur.
Af 10 skákum í fyrstu umferð urðu því óvænt úrslit í 7 þeirra og gefur vonandi fyrirheit um skemmtilegt mót framundan.
Pörun verður gerð næstkomandi fimmtudag og jafnframt er líklegt að við bætist jafnvel sterkur keppandi (ur) áður en það gerist.
úrslit fyrstu umferðar má sjá á chess-results.
http://chess-results.com/tnr148673.aspx?lan=1&art=2&rd=1&flag=30&wi=821
B flokkurinn er sá fjölmennasti frá upphafi en alls eru 21 skráður þar til leiks. Stigahæstur er Guðmundur Agnar Bragason TR og hann byrjaði skákina á fremur auðveldum sigri á Þorsteini Emil sem hafa verið hálf mislagðar hendur undanfarið.
Úrslitin urðu meira eftir bókinni í B flokki þar sem ekki urðu óvænt úrslit fyrr en á 8. borði þar sem Sólon Siguringason tapaði fyrir Daníel Erni Njarðarsyni. Reyndar má Helgi Svanberg Jónsson hafa talist fremur heppinn þegar andstæðingur hans missti af máthótun Helga.
Sjá má öll úrslit á sömu síðu og A flokkinn.