Taflfélag Garðabæjar

Skelmsk tilþrif og skákblinda í 4. umferð Skákhátíðar Fulltingis

Details
Written by: Administrator
Category: Skákmót
Published: 04 February 2023
Last Updated: 04 February 2023
Hits: 470

Fjórða umferð Skákhátíðar Fulltingis bauð upp á fjölbreytta takta – allt frá rökréttri hernaðarlist til óþreyjufullrar fífldirfsku. Í toppbaráttu A-flokks sigraði alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar stórmeistarannn Jóhann Hjartarson með svörtu, eftir að Jóhann missti þráðinn í skákinni. Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson lagði tiltilbróður sinn, Braga Þorfinnsson, eftir að sá síðarnefndi fórnaði peði í tvíeggjuðum gambít. Íslandsmeistarinn Hjörvar Steinn sneri á veflýsandann vinsæla, Ingvar Þór Jóhannesson, og hinn nýbakaði Fidemeistari Örn Leo Jóhannsson sigraði titilbróður sinn, Þorstein Þorsteinsson, í einungis 17 leikjum eftir að hinn síðarnefndi var sleginn skákblindu.  

Skák stórmeistaranna Helga Áss Grétarssonar og Braga Þorfinnssonar var snörp. Eftirfarandi staða kom upp eftir 12. leik svarts (sjá stöðumynd).



Þó að hvítur sé peði yfir er staðan í jafnvægi vegna yfirráða svarts yfir d- línunni og ótryggs valdastóls hvíta kóngsins á e2. Hér er sennilega vænlegast fyrir hvítan að leika 13. Hd1 sem mætti t.d. svara með 13....De6 14. Hxd8 Hxd8 15. Db3 en ekki 15. Bxc6?? vegna 15...Dc4+ og mátar!  Helgi afréð hins vegar að leika 13. Dxb4? sem hefur þann galla að eftir 13.... a6! 14. Db3 stendur svartur betur. Hér féll Bragi hins vegar á sverð sitt. Hann flýtti sér um of, sennilega til að koma Helga í tímaþröng, og valdi hinn laka kost 13...Rxb4. Eftir 14. Bxd7 Hxd715. Rc3 Hfd8 16. Hhf1 hefur hvítur einfaldlega sælu peði meira auk mun betri stöðu og það vafðist ekki fyrir lögfræðingnum skelegga að landa vinningnum.

Í A flokki er  Vignir Vatnar efstur með fullt hús stiga. Fast á hæla honum fylgir Helgi Áss Grétarsson með þrjá og hálfan vinning en í 3.-4. sæti eru jafnir þeir Örn Leo og Hjörvar Steinn með þrjá vinninga hvor.

Í B flokki er stórmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova, efst með þrjá og hálfan vinning ásamt vopnabróður sínum í TG, Sæberg Sigurðssyni. Næstir koma Jóhann Ragnarsson, Eiríkur K. Björnsson og Arnar Milutin Heiðarsson með þrjá vinninga hver.

 

Í 5. umferð leiða þessir saman hesta sína í A-flokki:




Í B-flokki verða viðureignir með þessum hætti:




Teflt er á mánudagskvöldum kl. 19.30 í safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ, 7 umferðir alls, og eru áhorfendur velkomnir.

Vignir Vatnar og Jóhann Hjartarsson stúdera eftir skák þeirra.

Skemtilegur endir á Skákhátíð Fulltingis!

Details
Written by: Administrator
Category: Skákmót
Published: 02 March 2023
Last Updated: 02 March 2023
Hits: 579

Skákhátið Fulltingis 2023 heppnaðist vel í alla staði þrátt fyrir skæðar umgangspestir og ófærð sem bitnaði á keppendum búsettum utan höfuðborgarsvæðisins. Þátttaka í mótinu var ókeypis sem og veitingar öll keppniskvöldin, þökk sé rausnarlegum stuðningi lögmannsstofunnar Fulltingis, sem auk þess lagði til vegleg verðlaun.

Hátíðinni lauk mánudagskvöldið 27. febrúar með bráðfjörugu hraðskákmóti yfir 40 keppenda og litskrúðugri verðlunaafhendingu í lokin. Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson varð hlutskarpastur á hraðskákmótinu, hlaut 9,5 vinninga af 11 mögulegum. Fast á hæla honum kom stórmeistarinn Jóhann Hjartarson með 9 vinninga en hann var sá eini sem lagði Vigni Vatnar.

Hér koma nokkrar myndir frá lokakvöldi hátíðarinnar:

Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari, sigraði með glæsibrag í A- flokki á Skákhátíð Fulltingis. Hann kveðst kunna einkar vel við sig í Garðabænum en skýrði þau orð sín ekki nánar fyrir viðstöddum.

Guðrún Fanney Briem stóð sig með sóma á mótinu og vann unglingaverðlaun undir 15 ára.

Vignir Vatnar vann til tvennra verðlauna á Skákhátið Fulltingis. Hér heitir hann því að stefna ótrauður á toppinn. Því fögnuðu allir viðstaddir og hvöttu ungstirnið til dáða.

Hugmyndasmiðir og upphafsmenn Skákhátíðarinnar. Jón Þorvaldsson skipuleggjandi og Þröstur Þórhallsson stórmeistari en auk þeirra lagði alþjóðlegi meistarinn Einar Hjalti Jensson hönd á plóg við þá mótun hugmyndafræðinnar.

Sagnfræðingurinn og stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson hefur þungan og öflugan skákstíl sem minnir stundum á traktor í lága drifinu. Bragi mun að sögn kunnugra vera manna fróðastur um sögu Zetor dráttgarvéla hérlendis á síðustu öld.

 

Jóhann Hjartarson vann hin eftirsóttu verðlaun öðlinga 60 ára og eldri en hann fagnaði stórafmæli meðan á Skákhátíðinni stóð. Jóhann hefur færst í aukana á viskualdrinum og er til alls líklegur í framtíðinni.

Hinn fríði hópur verðlaunahafa á Skákhátíð Fulltingis 2023. Á myndina vantar Hjörvar Stein Grétarsson, Guðlaugu Þorsteinsdóttur og Kristin Jens Sigþórsson.

Myndatökumaður var Jóhann Ragnarsson.

 

 

 

 

 



 

 

 

Sóley Lind Íslandsmeistari í eldri flokki stúlkna.

Details
Written by: Administrator
Category: Skákmót
Published: 13 February 2014
Last Updated: 13 February 2014
Hits: 2261

Sóley Lind Pálsdóttir sigraði á Íslandsmóti stúlkna sem var haldið á skákdaginn 26. jan síðastliðinn. 

 

P1010154

Tíu stúlkur tóku þátt í eldri flokki sem er metþátttaka. Þar tapaði Sóley í fyrstu umferð fyrir Hildi Berglindi Jóhannsdóttir en fór eftir í það í mikið stuð og vann allar skákir sem eftir voru.

Það dugði til að komast fremst í mark með 8 vinninga í 9 skákum. Hildur Berglind og Ásta Sóley Júlíusdóttir urðu jafnar með 7 vinninga en Hildur hafði annað sætið eftir stigaútreikning.

Lokastaðan:

  • 1. Sóley Lind Pálsdóttir 8 v. af 9
  • 2. Hildur Berglind Jóhannsdóttir 7 v.
  • 3. Ásta Sóley Júlísdóttir 7 v.
  • 4.-6. Tara Sóley Mobee, Sólrún Freygarðsdóttir og Sigrún Linda Baldursdóttir 5 v.
  • 7. Sonja María Friðriksdóttir 4 v.
  • 8. Freyja Dögg Delecva 3 v.
  • 9. Dóra Valgerður Óskarsdóttir 1 v.
  • 10. Tinna Björk Rögnvaldsdóttir 0 v

sjá nánar

http://skak.blog.is/blog/skak/entry/1350302/

 

P1010124

Temprumót TG hefst í dag

Details
Written by: Páll Sigurðsson
Category: Skákmót
Published: 07 February 2022
Last Updated: 07 February 2022
Hits: 465

Skráning í mótið er á skak.is (gulum kassa til hægri á aðalsíðu)

 

Page 7 of 7

  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7

Valmynd

  • Heim
  • Eldri fréttir
  • Um félagið
  • Barna og unglingastarf
  • Skákæfingar fullorðinna (16 ára og eldri)
Sómi