Bárður Örn Birkisson fórnaði 2 peðum gegn Þóri Ben sem virtist aldrei eiga séns. Agnar Tómas Möller sigraði Pál Sigurðsson eftir að hinn síðarnefni bjó sér til jólapakka handa andstæðingnum sem var gjörsamlega pakkað saman. Einnig vann Unnar Ingvarson mikinn heppnissigur á Spánverjanum Plantada þótt fyrirfram hafi það ekki verið óvænt. 

Efstir á mótinu eru þeir Jóhann Helgi, Bárður Örn og Ólafur Guðmunds með fullt hús eftir 2 umferðir.

Einni skák var frestað og tefla þeir Haraldur og Gauti Páll á sunnudagskvöld. 

Í næstu umferð tefla saman ma. Jóhann Helgi og Bárður, Ólafur og Jón Þór Helgason, Þórir og Björn og Plantada og Guðlaug

Skákir A flokks í 2 umferð.

Skákir B flokks í 2. umferð. 

Í B flokki áttu þeir Róbert Luu, Bragi Þór Thoroddsen og Aron Mai fremur náðugan dag og unnu frekar auðvelda sigra og lyftu sér með því í efstu sæti, en aðrir forustusauðir gerðu tilþrifalítil jafntefli. Viðkomandi skákmenn mættu átta sig á því að hálfur vinningur er líka hálft tap og menn þurfa að vinna skákir til að vinna mótin. 

Í næstu umferð teflir Aron Mai gegn Robert Luu í skák sem vel gæti orðið úrslitaskák mótsins, enda báðir skákmenn á fljúgandi uppleið. Feðgar mætast í hinni toppskákinni. Halldór Atli Fær Þorstein Magnússon og Björgvin Kristbergsson fær Sindra Snæ.

Björn Magnússon fær svo skottu og situr því hjá.

Sjá má pörun og öll úrlslit á Chess-results.com