Taflfélag Garðabæjar

Skákmót

Skelmsk tilþrif og skákblinda í 4. umferð Skákhátíðar Fulltingis

Details
Written by: Administrator
Category: Skákmót
Published: 04 February 2023
Last Updated: 04 February 2023
Hits: 470

Fjórða umferð Skákhátíðar Fulltingis bauð upp á fjölbreytta takta – allt frá rökréttri hernaðarlist til óþreyjufullrar fífldirfsku. Í toppbaráttu A-flokks sigraði alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar stórmeistarannn Jóhann Hjartarson með svörtu, eftir að Jóhann missti þráðinn í skákinni. Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson lagði tiltilbróður sinn, Braga Þorfinnsson, eftir að sá síðarnefndi fórnaði peði í tvíeggjuðum gambít. Íslandsmeistarinn Hjörvar Steinn sneri á veflýsandann vinsæla, Ingvar Þór Jóhannesson, og hinn nýbakaði Fidemeistari Örn Leo Jóhannsson sigraði titilbróður sinn, Þorstein Þorsteinsson, í einungis 17 leikjum eftir að hinn síðarnefndi var sleginn skákblindu.  

Skák stórmeistaranna Helga Áss Grétarssonar og Braga Þorfinnssonar var snörp. Eftirfarandi staða kom upp eftir 12. leik svarts (sjá stöðumynd).



Þó að hvítur sé peði yfir er staðan í jafnvægi vegna yfirráða svarts yfir d- línunni og ótryggs valdastóls hvíta kóngsins á e2. Hér er sennilega vænlegast fyrir hvítan að leika 13. Hd1 sem mætti t.d. svara með 13....De6 14. Hxd8 Hxd8 15. Db3 en ekki 15. Bxc6?? vegna 15...Dc4+ og mátar!  Helgi afréð hins vegar að leika 13. Dxb4? sem hefur þann galla að eftir 13.... a6! 14. Db3 stendur svartur betur. Hér féll Bragi hins vegar á sverð sitt. Hann flýtti sér um of, sennilega til að koma Helga í tímaþröng, og valdi hinn laka kost 13...Rxb4. Eftir 14. Bxd7 Hxd715. Rc3 Hfd8 16. Hhf1 hefur hvítur einfaldlega sælu peði meira auk mun betri stöðu og það vafðist ekki fyrir lögfræðingnum skelegga að landa vinningnum.

Í A flokki er  Vignir Vatnar efstur með fullt hús stiga. Fast á hæla honum fylgir Helgi Áss Grétarsson með þrjá og hálfan vinning en í 3.-4. sæti eru jafnir þeir Örn Leo og Hjörvar Steinn með þrjá vinninga hvor.

Í B flokki er stórmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova, efst með þrjá og hálfan vinning ásamt vopnabróður sínum í TG, Sæberg Sigurðssyni. Næstir koma Jóhann Ragnarsson, Eiríkur K. Björnsson og Arnar Milutin Heiðarsson með þrjá vinninga hver.

 

Í 5. umferð leiða þessir saman hesta sína í A-flokki:




Í B-flokki verða viðureignir með þessum hætti:




Teflt er á mánudagskvöldum kl. 19.30 í safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ, 7 umferðir alls, og eru áhorfendur velkomnir.

Vignir Vatnar og Jóhann Hjartarsson stúdera eftir skák þeirra.

Skákhátíð Fulltingis – áhugaverð úrslit í 3. umferð

Details
Written by: Administrator
Category: Skákmót
Published: 25 January 2023
Last Updated: 04 February 2023
Hits: 397

Þriðja umferð Skákhátíðar Fulltingis fór fram 23. janúar. Boðið var upp á hatramma baráttu á flestum borðum. Þannig skildu t.d. engir keppendur jafnir í B-flokki.  Í toppbaráttu A-flokks gerðu Bragi Þorfinnsson og Jóhann Hjartarson sannkallað stórmeistarajafntefli en Vignir Vatnar sigraði Örn Leó Jóhannsson og Helgi Áss lagði Dag Arngrímsson.

Þorsteinn Þorsteinsson

Fide-meistararnir efnilegu, Aleksandr Domalchuk-Jonasson og Þorsteinn Þorsteinsson tefldu eftirtektarverða skák. Þorsteini lætur jafnan vel að efna til stöðufræðilegra stympinga og sá eiginleiki varð honum að vopni í þessari rimmu. Eftirfarandi staða kom upp eftir 18. leik hvíts:

 

 

Hér sér Þorsteinn sér leik á borði og fórnar peði til að veikja stöðu hvíts á hvítu reitunum og um leið á 1. reitaröðinni: 18... d4! 19. exd4 cxd4 20. Bxd4 Bxg2 21. Kxg2 Dc6+ 22. Kg1 Hf-d8 23. De2 Da4. 24. Be3 De4 25. Hxd8+ Hxd8 26. Db5 Bxa3 (svarti biskupinn er að sjálfsögðu friðhelgur vegna máts uppi í borði) 27. Da5 Be7 28. Dc7 Db4 29 Dxa7 h5 30. h4 (sjá stöðumynd)


 

 

 

Í jafnri stöðu afræður Þorsteinn að fórna manni með hliðsjón af tímahraki hvíts: 30... Bxh4!? 31. Ha4 (hvítur teflir til vinnings en 31. gxh4 – Dg4 32. Kf1 – Hd1 leiðir til jafnteflis) 31. - De1+ 32. Kg2 Bxg3 33. fxg3 Hd1 34. Bg1?? (Nauðsynlegt var 34. Da8+ Kh7 35. D44+ g6 36. Kh3 sem virðist halda í horfinu) Df1+ 35. Kh2 Hd2+ og hér lagði hvítur niður vopnin.


Í A flokki er alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson efstur með fullt hús stiga. Næstir koma stórmeistararnir Bragi Þorfinnsson, Jóhann Hjartarson og Helgi Á. Grétarsson með tvo og hálfan vinning hver.

Í B flokki er stórmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova, efst með fullt hús stiga. Næstir koma Kristinn Bjarnason, Sæberg Sigurðsson og Eiríkur K. Björnsson með tvo og hálfan vinning hver.

 

Í 4. umferð leiða þessir saman hesta sína í A-flokki:



Í B-flokki verða viðureignir með þessum hætti:



Teflt er á mánudagskvöldum kl. 19.30 í safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ, 7 umferðir alls, og eru áhorfendur velkomnir. ir.

Jólapakkamótið 2022

Details
Written by: Administrator
Category: Skákmót
Published: 10 December 2022
Last Updated: 10 December 2022
Hits: 489

 



Jólapakkaskákmótið getur nú farið fram í fullri stærð og mun gera það laugardaginn 17. desember næstkomandi í Miðgarði í Garðabæ.


Amk. 3 jólapakkar verða í verðlaun fyrir bæði stráka og stelpur í hverjum flokki auk. amk. 3 happdrættisvinninga og er reiknað með að keppt verði í allt að 6 aldursflokkum auk peðaskákar fyrir þau yngstu. Allir keppendur fá glaðning að móti loknu að venju. 

Tímamörk 7 mínútur á skák. Reiknað er með 5 umferðum í hverjum flokki. 

A flokkur börn og unglingar fædd 2007 til 2009. kl. 11.00
B flokkur börn fædd 2010 til 2011 kl. 11.00
C flokkur börn fædd 2012 til 2013 kl. 11:00
D- til F flokkar fædd 2014 og yngri. kl.13:00 - 2-3 flokkar.

Peðaskák er bara fyrir yngstu börnin.  kl. 13:15

ATH ef heildarfjöldi keppenda er færri en 150 keppendur byrja allir flokkar kl. 13:00. 

Skráningarhlekkur: https://forms.gle/DjBu4xsgy7NSNFdv6 og á skak.is

Skráningu lýkur kl. 10.00 föstudaginn 16. desember. 


Þátttökugjöld 500 kr. Óskast millifært á reikning TG.  kt: 4911952319 rnr:546-26-2124. 

Nánari upplýsingar í með því að senda post á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Mótsstaður:
Miðgarður, fjölnota íþróttahús, Garðabæ

Hlökkum til að sjá ykkur!!!!!

 

Pizzu skákhátíð TG

Details
Written by: Administrator
Category: Skákmót
Published: 27 September 2022
Last Updated: 27 September 2022
Hits: 394

Pizzu skákhátíð fyrir krakkana á laugardag.

Hvenær: Laugardagur 1.10. kl. 14:00-15:30
Hvar: Miðgarður, 3.hæð (Vetrarbraut 18, 210 Gardabaer)
2 flokkar:
- 3. bekkur og yngri
- 4.-10. bekkur (mótið verður ekki reiknað til FIDE)

Teflum í um 1 klukkutíma. Verðlaun í báðum flokkum. Medalíur fyrir 1., 2. og 3. sæti, efst stúlkna og glaðning fyrir alla.

Fögnum móti með pizzuveislu í lokinn. Skráning lokast á föstudag 30.9. kl. 20:00.

Ókeypis fyrir skráða iðkendur TG, aðrir 500 ISK.

Hlökkum til að sjá ykkur! 🙂 Skráning á: https://forms.gle/q6crTfjNWfHTXfce8

Page 2 of 9

  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9

Valmynd

  • Heim
    • Atburðir - Dagatal
  • Eldri fréttir
  • Um félagið
  • Barna og unglingastarf
  • Skákæfingar fullorðinna (16 ára og eldri)
«
<
October 2026
>
»
S M T W T F S
27 28 29 30 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
Sómi