Taflfélag Garðabæjar

Skráning er hafin fyrir skákæfingar Taflfélags Garðabæjar veturinn 2025-2026

Details
Written by: Administrator
Category: Um félagið
Published: 22 August 2025
Last Updated: 30 August 2025
Hits: 642

Mikil fjölgun var á iðkendum hjá félaginu s.l. vetur og höfum við því bæði fjölgað hópum hjá okkur og fjölgað þjálfurum. Lenka Ptáčníková stórmeistari kvenna verður áfram yfirþjálfari hjá félaginu en Dagur Ragnarsson alþjóðlegur meistari og landsliðsmaður í skák bætist við hópinn. Þeim til aðstoðar verður Daníel Friðrik Hjartar sem einmitt er uppalinn í unglingastarfi TG.

Við skiptum krökkunum upp í fjóra hópa hjá okkur í vetur: 

  • Byrjendaflokkur – 4-5 ára: Krakkar sem eru að taka sín fyrstu skref í skákinni en eru áhugasamir. 
  • Lengra komnir byrjendur 1-3 bekkur: Krakkar sem eru búnir að ná tökum á mannganginum og farnir að geta mátað.
  • Framhaldsflokkur: Krakkar sem þekkja vel allar reglur og eru byrjaðir að keppa á mótum.
  • Úrvalshópur: Þeir sem eru lengst komnir og keppa reglulega á mótum. Valið er í þennan hóp af þjálfurum.

Æfingarnar fara fram á 3. hæð í Miðgarði 

Þriðjudagur

16:25-17:25 Lengra komnir byrjendur (1-3 bekkur)

17:30-18:30 Framhaldshópur (4-10. bekkur)

Fimmtudagur

 17:30 til 19:00. Úrvalshópur

Laugardagur

11:40 til 12:20 Byrjendaflokkur (Leikskólahópur - 4-5 ára) 

12:25 til 13:25. Lengra komnir byrjendur (1-3. Bekkur)

13:30 til 15:00 Framhalds- og Úrvalshópur

Ef vafi er á í hvaða hóp á að skrá barnið þá er best að hafa samband við yfirþjálfara,
gegnum tölvupóst: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða síma: 699 7963

Fyrsta æfing verður laugardaginn 30. ágúst.

ATHUGIÐ AÐ TAKMARKAÐUR FJÖLDI ER Í SUMA HÓPANA OG ÞVÍ MIKILVÆGT AÐ SKRÁ SIG SEM FYRST

Aðalfundur TG 2024

Details
Written by: Administrator
Category: Um félagið
Published: 27 April 2024
Last Updated: 27 April 2024
Hits: 1156
Aðalfundur Taflfélags Garðabæjar verður haldinn í Miðgarði fimmtudaginn 30. maí 2024. 3. hæð.
 
Fundarefni
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stefnumótununarumræða vegna áherslna félagsins.
 
Lagabreytingartillögur þurfa að koma fram viku fyrir fund.
Sjá gildandi lög:
https://www.tafl.is/vefur/index.php/um-felagidh/loeg-tg

Rukkun félagsgjalda

Details
Written by: Páll Sigurðsson
Category: Um félagið
Published: 31 August 2022
Last Updated: 19 September 2022
Hits: 1529

Félagið er um þessar mundir að senda út valkröfur til félagsmanna vegna greiðslu félagsgjalda fyrir árið 2022. 

Miðað er við félagsmenn skráða á keppendaskrá skáksambands Íslands - skakmenn.skak.is 18 ára og eldri. 

Eitthvað er um það að félagsmenn sérstaklega þeir sem hafa komið inn í félagið eftir sameiningu TG og skákfélagsins Hugins á síðasta ári, kannist ekki við að vera skráðir félagsmenn. 

 

Ef þið teljið ykkur vera að fá sendar rukkanir fyrir mistök er vinsamlega hafið samband við félagið. Td. með því að senda félaginu skilaboð á facebook eða með því að hringja í formann (Páll Sigurðsson) í síma 8603120. eða með tölvupósti til að fyrirbyggja slíkt í framtíðinni.

 

Ath. einnig að félagsgjöld má greiða og þess að fá aðgang að sportabler á slóðinni https://www.sportabler.com/shop/tg

 

 

 

Félagstarf í vetur 2022 til 2023

Details
Written by: Administrator
Category: Um félagið
Published: 22 August 2022
Last Updated: 22 August 2022
Hits: 1455

Félagið verður bæði með barna og fullorðinsæfingar í vetur. 

Fullorðinsæfingar verða í Miðgarði (Til vara á Álftanesi) en Barnastarfið líklega á Bókasafni Garðabæjar.

Verið er að vinna í nánara fyrirkomulagi og það auglýst eins fljótt og hægt er.

Skákæfingar fullorðinna (16 ára og eldri)

Details
Written by: Administrator
Category: Um félagið
Published: 21 February 2022
Last Updated: 17 September 2023
Hits: 734
Skákkvöld TG eru hafin á mánudagskvöldum veturinn 2023-2024.
 
Teflt alla mánudaga kl. 19.30 í Miðgarði, (3. hæð) nema almenna frídaga (jól, áramót).
 
Þátttaka er amk. ennþá ókeypis og telfdar eru hraðskákir reiknaðar til hraðskákstiga Fide.
 
Tímamörk eru 3 mínútur + 2 sekúndur á leik.
Allir velkomnir.

 

 

  1. Barna og unglingastarf TG
  2. Skákmeistarar TG
  3. Lög TG
  4. Saga Taflfélags Garðabæjar

Valmynd

  • Heim
  • Eldri fréttir
  • Um félagið
    • Saga Félagsins
    • Lög TG
    • Skákmeistarar TG
    • Skákstigalisti TG
  • Barna og unglingastarf
  • Skákæfingar fullorðinna (16 ára og eldri)
Sómi