Um félagið
- Details
- Written by: Páll Sigurðsson
- Category: Um félagið
- Hits: 1073
Taflfélag Garðabæjar var stofnað 17. nóvember árið 1980. Fyrsta stjórn þess var þannig skipuð:
Sigurður Sigurkarlsson, formaður, Ómar Ingólfsson, Jón Rögnvaldsson, Símon Ólafsson og Stefán Friðfinnsson Fyrst var tekið þátt í deildakeppni Skáksambands Íslands á Húsavík árið 1981.
Þrátt fyrir að félagið sé tiltölulega ungt þá hefur það náð nokkrum árangri í gegnum tíðina.
Árið 1988 hélt TG alþjóðlegt hraðskákmót í samvinnu við Tímaritið Skák þar sem meðal þátttakenda voru innlendir og erlendir stórmeistarar.
Árið 1992 vann félagið sigur í deildakeppni skáksambands Íslands eftir harða keppni við Skákfélag Akureyrar.
Þessi sigur gaf þáttökurétt í evrópukeppni taflfélaga og sendi félagið sveit í hana árið 1993. Teflt var í Barbican Center í London. Þar var keppt eftir útsláttarfyrirkomulagi og tapaði TG í fyrstu umferð með litlum mun á móti sterkum hollenskum klúbbi þar sem í liði andstæðinganna voru meðal annara stórmeistarar eins og Korchnoi, Speelman, Van der Wiel, og fleiri. Félagið vann síðan 2 næstu viðureignir. Gegn Petersborg sem mætti ekki og svo Barbican klúbbnum breska og endaði í 5 sæti.
Í September 2021 voru félögin Huginn og TG sameinuð undir nafni TG. Við það rúmlega tvöfaldaðist félagatala TG auk þess að sterkir stórmeistarar bættust við félagatalið.
Formenn TG frá upphafi.
1980-1982 Sigurður Sigurkarlsson
1982-1988 Jón Rögnvaldsson
1988-1991 Jóhann H Ragnarsson
1991-1992 Björn Jónsson
1992-1994 Páll Sigurðsson
1994-1995 Sævar Jóhann Bjarnason
1995-1998 Baldvin Gíslason Bern
1998-2000 Leifur Ingi Vilmundarson
2000-2018 Páll Sigurðsson
2018-2019 Enginn formaður en Bjarnsteinn Þórsson gjaldkeri sinnti formennsku.
2019-2021 Sindri Guðjónsson
2021 - Páll Sigurðsson
- Details
- Written by: Administrator
- Category: Um félagið
- Hits: 3715
Taflfélag Garðabæjar
kt: 491195-2319
stofnað 17. nóvember 1980.
Formaður og tengiliður félagsins starfsárið 2023-2024 er Páll Sigurðsson (GSM 8603120)
netfang félagsins er
Taflfélag Garðabæjar er með starfsemi í vetur í íþróttamiðstöðinni Miðgarði í Garðabæ.
Fullorðinsstarf á mánudögum kl. 19.30. Barna og unglingastarf á þriðjudögum og laugardögum. Sjá auglýsta atburði Facebook síðu félagsins sem og innri félagshóp félagsins.
Félagið starfar að mestu leiti eingöngu yfir vetrartímann og tekur þátt í öllum helstu liðakeppnum í landinu. ss. Hraðskákkepni taflfélaga og Íslandsmóti Skákfélaga sem er stærsta og fjölmennasta mót ársins.
Barna og Unglingaþjálfarar félagsins í vetur eru Vignir Vatnar Stefánsson stórmeistari og Lenka Ptacnikova stórmeistari kvenna.
Skráning í unglingastarfið sem og greiðsla félagsgjalda og skráning í fullorðinsstarf fer fram á slóðinni https://www.sportabler.com/shop/tg