Heim
Barna og unglingastarf TG
- Details
- Written by: Páll Sigurðsson
- Category: Um félagið
- Hits: 1790
Mikil fjölgun var á iðkendum hjá félaginu s.l. vetur og höfum við því bæði fjölgað hópum hjá okkur og fjölgað þjálfurum. Lenka Ptáčníková stórmeistari kvenna verður áfram yfirþjálfari hjá félaginu en Dagur Ragnarsson alþjóðlegur meistari og landsliðsmaður í skák bætist við hópinn. Þeim til aðstoðar verður Daníel Friðrik Hjartar sem einmitt er uppalinn í unglingastarfi TG.
Við skiptum krökkunum upp í fjóra hópa hjá okkur í vetur:
- Byrjendaflokkur – 4-5 ára: Krakkar sem eru að taka sín fyrstu skref í skákinni en eru áhugasamir.
- Lengra komnir byrjendur 1-3 bekkur: Krakkar sem eru búnir að ná tökum á mannganginum og farnir að geta mátað.
- Framhaldsflokkur: Krakkar sem þekkja vel allar reglur og eru byrjaðir að keppa á mótum.
- Úrvalshópur: Þeir sem eru lengst komnir og keppa reglulega á mótum. Valið er í þennan hóp af þjálfurum.
Æfingarnar fara fram á 3. hæð í Miðgarði
Þriðjudagur
16:25-17:25 Lengra komnir byrjendur (1-3 bekkur)
17:30-18:30 Framhaldshópur (4-10. bekkur)
Fimmtudagur
17:30 til 19:00. Úrvalshópur
Laugardagur
11:40 til 12:20 Byrjendaflokkur (Leikskólahópur - 4-5 ára)
12:25 til 13:25. Lengra komnir byrjendur (1-3. Bekkur)
13:30 til 15:00 Framhalds- og Úrvalshópur
Öllum er frjálst að mæta og prófa.
Skráning í starfið er á slóðinni https://www.sportabler.com/shop/tg
Aukaaðalfundur TG
- Details
- Written by: Páll Sigurðsson
- Category: Fréttir
- Hits: 544
Eins og kom fram í fyrri tilkynningu frá félaginu (skak.is og facebook síðu félagsins) er auka aðalfundur boðaður vegna sameiningar TG og Hugins undir nafni Hugins.
Fundurinn verður haldinn í Íþróttamiðstöðinni á Álftanesi mánudaginn 13. september kl. 20. 2 hæð.
Skákfélögin TG og Huginn sameinast
Taflfélag Garðabæjar og Taflfélagið Huginn hafa ákveðið að sameinast undir nafni Taflfélags Garðabæjar og nýju merki þess félags. Samruninn hefur þegar verið samþykktur á aðalfundum hvors félags um sig, en aukaaðalfundur verður fljótlega þar sem ný stjórn verður kosin.
Samruninn mun verða með þeim hætti að félagsmenn Hugins munu færast sjálfkrafa í keppendaskrá sem félagsmenn Taflfélags Garðabæjar. Félagið verður eftir samrunann eitt öflugasta taflfélag landsins og mun senda margar sveitir til leiks á Íslandsmóti skákfélaga, auk þess að standa fyrir mótahaldi, þjálfun barna og öðrum viðburðum.
Áhersla verður lögð á markvisst barna- og unglingastarf á skemmtilegum nótum ásamt því að móta öfluga og líflega umgjörð um skákiðkun fullorðinna, jafnt afreks- sem áhugamanna. Félagið mun leggja sig fram um að laða til leiks lítt virka skákunnendur af báðum kynjum og skapa þeim aðstöðu til að njóta þess að tefla saman í góðum hópi.
Stjórnir beggja félaga hafa trú á því að sameiningin muni koma félagsmönnum þeirra til góða og að með þessu skapist sóknarfæri til að vinna að metnaðarfullum markmiðum tómstundastarfs með atfylgi öflugs bæjarfélags.
Aðalfundur TG
- Details
- Written by: Administrator
- Category: Fréttir
- Hits: 723
Íslandsmót Kvenna 2020
- Details
- Written by: Páll Sigurðsson
- Category: Skákmót
- Hits: 835
Íslandsmót kvenna í skák hófst í kvöld í Sveinatungu við Garðatorg 7 í Garðabæ. Átta af tólf stigahæstu skákkonum landsins taka þátt. Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs Garðabæjar setti mótið og lék fyrsta leikinn í sigurskák Lisseth Acevedo Mendez gegn Hrund Hauksdóttur.

Mótið fer fram 27. febrúar – 3. mars og er teflt í tveim flokkum. Annars vegar í landsliðsflokki kvenna. Þar eiga keppnisrétt allar skákkonur með 1600 skákstig eða meira. Sigurvegarinn hlýtur sæmdarheitið Íslandsmeistari kvenna árið 2020. Hins vegar í áskorendaflokki kvenna. Hann er opinn fyrir allar skákkonur sem ekki ná 1600 skákstigum.
Keppendalistinn:
1.WGM Lenka Ptácníková (2099)
2.WFM Guðlaug Þorsteinsdóttir (2021)
3.Jóhanna Björg Jóhanndóttir (1933)
4.WIM Lisseth Acevedo Mendez (1849)
5.Tinna Kristín Finnbogadóttir (1838)
6.Hrund Hauksdóttir (1804)
7.Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir (1690)
8.Sigríður Björg Helgadóttir (1682)
Mótið er haldið sameiginlega af Skáksambandi Íslands og Taflfélagi Garðabæjar sem fagnar 40 ára afmæli í ár. Beinar útsendingar verða frá landsliðsflokki.
Sjá nánar um mótið hér á vef Skáksambands Íslands.
Vefsíða mótsins - þar má sjá nánari tímasetningar á umferðum mótsins.
Page 6 of 15